Heim Þjónusta Verkefni Vefúttekt Um okkur

Sjáðustöðuna

Sláðu inn vefinn þinn. Greiningarvél okkar les hann, mælir tækni, hraða, öryggi og sýnileika og skilar faglegri úttekt sem þú getur lesið strax.

Gagnasafnið okkar
0

Höfum greint yfir 30.000 íslenska vefi. Við erum sérfræðingar í vefþróun, hraða og öryggi og vitum nákvæmlega hvert á að leita.

Vottuð greining
  1. 1

    Sláðu inn lén

    Ekkert notandanafn, ekkert kreditkort. Bara vefslóðin þín og einn smellur.

  2. 2

    Vélin les vefinn

    Greiningarvélin heimsækir vefinn eins og notandi og leitarvél gera: mælir tækni, hraða, öryggi og sýnileika.

  3. 3

    Úttektin opnast

    Innan mínútu færðu skor, sundurliðun og skýrar ábendingar, skrifaðar á mannamáli.

Af hverju að skanna?

Veistu hvernig vefnum þínum gengur?

Hraði

Fyrsta sýn tekur sekúndur

Hægur vefur missir heimsóknir áður en nokkur les fyrsta orðið. Úttektin sýnir svart á hvítu hvort vefurinn þinn svarar nógu hratt.

Sýnileiki

Google er að meta þig núna

Leitarvélar verðlauna tæknilega heilbrigða vefi. Úttektin finnur það sem heldur þér neðar í leitarniðurstöðum en þú átt skilið.

Öryggi

Traust byggist á smáatriðum

Útrunnin skírteini og gamlar viðbætur fæla bæði viðskiptavini og leitarvélar. Betra að finna það sjálfur en að láta aðra reka sig á það.

Hvað er mælt

Vefkerfið sem vefurinn keyrir á, útgáfur og viðbætur, svartími og hraði, SSL og öryggisstillingar, mælingar og sýnileiki í leit. Allt lesið beint af vefnum, ekkert giskað.

TækniHraðiÖryggiSEO

Hvað færðu?

Heildarskor með sundurliðun, það sem er í góðu lagi, það sem má laga og hvers vegna það skiptir máli. Skrifað á mannamáli, ekki sem tæknilegur útprentaður listi.

SkorNiðurstöður

Hvað kostar úttektin?

Ekkert. Úttektin er gefin án skilyrða og án skráningar. Viljirðu fara yfir niðurstöðurnar með okkur er hnappur til þess neðst á úttektinni. Það er þitt val, ekki skilyrði.

Ókeypis

Ertu með spurningu áður en þú byrjar?

Hafa samband