Nokkur valin verkefni frá síðustu árum.
Vefþróun og leitarvélabestun fyrir nýtt íbúðahverfi við Laugardalinn. Valinn söluvefur ársins 2025.
Vefur alþjóðlegra körfuboltabúða í Reykjavík þar sem leikmenn og þjálfarar úr NBA og WNBA þjálfa unga íslenska leikmenn. Hönnun og forritun.
Netverslun með gjafaöskjur þar sem viðtakandinn velur sína upplifun. Vöruskrá, óskalisti, samstarfsaðilar og gjafakort sem fer beint í símann.
Vefur bókhalds- og viðskiptakerfis í skýinu: vöruúrval, verðskrá og reiknivél á tveimur tungumálum. Vefþróun og bestun á uppsetningu.
Hönnun og vefþróun á enskum vef fyrir þyrluskíðaferðir á Íslandi: ferðapakkar og verð, leiðsögumenn, þyrlufloti og bókunarbeiðni beint af vefnum.
Vefur vildarsamfélagsins Takk, þar sem viðskiptavinir Bónus, Hagkaups og Eldum rétt safna Takk krónum. Við forrituðum vefinn.
Heildaruppbygging á miðlægum upplýsingavef Þjóðkirkjunnar: veftré, wireframe, forritun og tæknileg uppsetning.
Vefur Landbúnaðarháskóla Íslands. Við forrituðum vefinn.
Alþjóðleg herferð UN Women gegn afturför í réttindum kvenna, leidd af UN Women á Íslandi og fylgt eftir í yfir tíu löndum, unnin í samstarfi við Pipar\TBWA. Tilnefnd til PHNX-verðlaunanna.
Forritun og tæknileg uppsetning á vef einnar þekktustu hljómsveitar Íslands.
Vitundarvakning um skjánotkun. Uppsetning, forritun, sýnileikabestun og tækniráðgjöf í samstarfi við Pipar\TBWA og Skot.
Fræðsluvefur um ábyrga sölu og vernd ungmenna gagnvart tóbaks- og nikótínvörum. Hönnun, uppsetning, forritun og SEO.
Fræðsluvefur um félagslegt netöryggi og miðlalæsi. Uppsetning, forritun, SEO og tækniráðgjöf.
Fræðsluvefur um áhrif skjánotkunar undir stýri. Vefþróun og leitarvélabestun.
Nútímaleg og notendavæn vefsíða sem styður vöxt fyrirtækisins í stafrænum markaðslausnum.
Stílhrein lendingarsíða fyrir vínbarinn Bodega sem fangar anda staðarins.
Full vefþróun og leitarvélabestun fyrir eina stærstu verkfræðistofu landsins.
Vefur eins stærsta malbikunar- og vegagerðarfyrirtækis landsins. Við forrituðum vefinn og sjáum um leitarvélabestun.
Herferðarvefur fyrir Colas þar sem landsmenn senda inn ljóð um vegaskemmdir og viðhald. Við forrituðum vefinn og settum upp.
Ný vefsíða, sérsniðið bakendakerfi og leitarvélabestun fyrir höfundaréttarsamtök Eistlands.
Hönnun og þróun með áherslu á leitarvélabestun og skýra framsetningu á fjölbreyttri gámaþjónustu.
Forvarnarátak um ofbeldi í nánum samböndum ungmenna. Öll vefþróun; verkefnið var tilnefnt til PHNX-verðlauna.
Heildarhönnun, þróun og leitarvélabestun fyrir fjármálaráðgjöf í Eystrasaltsríkjunum.
Hönnun og forritun á vef fasteignaþróunarfyrirtækis sem miðlar verkefnum, stefnu og framtíðarsýn.
Einföld og falleg lendingarsíða sem kynnir vörur Gevalia í notendavænu umhverfi.
Netverslun með náttúruleg bætiefni: hönnun, forritun og einföld kaupupplifun.
Hönnun og forritun á vef sem miðlar endurhæfingarþjónustu fyrir hreyfihamlaða einstaklinga.
Hönnun og forritun fyrir fasteignaþróunarverkefni með áherslu á sjálfbærni og grænar lausnir.
Stafrænn leikur í samvinnu við Pipar\TBWA fyrir vináttulandsleik Íslands og Englands á Wembley.
Vefur, vörumerki, ásýnd og umbúðir fyrir lyfjaþróunarfyrirtæki í erfðamengisrannsóknum.
Uppsetning, forritun og leitarvélabestun fyrir sérhæfða læknastofu, starfrækta frá 2008.
Lendingarsíða fyrir herferðir og upplýsingar um veitingastaðinn á Íslandi.
Hönnun og forritun á vef sem miðlar svefnheilbrigðislausnum á heimsvísu.
Vefþróun og leitarvélabestun fyrir kökubúðina Sætar Syndir.
Vefþróun fyrir Espak, byggingavöruverslunarkeðju í Eistlandi.