Shopify er verslunarkerfið
30% netverslana keyra á Shopify, á móti 5,3% allra íslenskra vefja.
Staðan á 35.720 íslenskum vefjum, lesin af greiningarvélinni okkar. Hvaða kerfi þeir keyra, hvað er að og hvað kom á óvart.
Skrollaðu áfram. Hver reitur í töflunni er eitt prósent af öllum vefjum sem svöruðu mælingu.
11.228 vefir. Tveir af hverjum fimm íslenskum vefjum keyra á sama kerfi.
7.952 vefir byggðir án tilbúins vefumsjónarkerfis. Næstum þriðjungur.
Önnur kerfi eru 7,9% og á 4,4% vefja þekkist kerfið ekki.
30% netverslana keyra á Shopify, á móti 5,3% allra íslenskra vefja.
Miðgildi svartíma er 0,17 sekúndur hjá Wix en 0,65 hjá WordPress.
58% vefja í veitingum og ferðaþjónustu keyra úrelt PHP, á móti 45% að meðaltali.
SSL skírteini sem renna út á næstu 30 dögum. 203 þeirra eru hjá netverslunum.
Á síðustu 30 dögum. 274 þeirra fóru úr sérsmíðuðu kerfi yfir í WordPress.
Algengustu greinarnar, af þeim 20.574 vefjum sem vélin hefur flokkað.
Sama vél, þinn vefur. Úttekt á tækni, hraða, öryggi og sýnileika á innan við mínútu, án skráningar.
Greiningarvélin okkar, Wisdom, les íslenska vefi reglulega: hvaða kerfi þeir keyra, hversu hratt þeir svara, hvort skírteini og uppfærslur séu í lagi og hvort mælingar séu til staðar.
Tölurnar hér eru staðan 7. október 2026. Hlutföll eru reiknuð af þeim 26.849 vefjum sem svöruðu mælingu nema annað sé tekið fram. Síðan er uppfærð mánaðarlega.
| Kerfi | Vefir | Hlutfall |
|---|---|---|
| WordPress | 11.228 | 41,8% |
| Sérsmíðað | 7.952 | 29,6% |
| Wix | 1.520 | 5,7% |
| Shopify | 1.421 | 5,3% |
| Squarespace | 787 | 2,9% |
| Moya | 628 | 2,3% |
| Önnur kerfi | 2.125 | 7,9% |
| Kerfi óþekkt | 1.188 | 4,4% |