Heim Þjónusta Verkefni Vefúttekt Um okkur
← Öll þjónusta

VefþróunFrá grunni

Sérsniðnir vefir, vefkerfi og netverslanir. Við veljum tæknina eftir verkefninu, ekki öfugt, og byggjum þannig að vefurinn þoli vöxt.

Þjónustan

Þetta felst í vefþróun

Vefsíður

Kynningarvefir og upplýsingavefir sem eru hraðir, aðgengilegir og einfaldir í rekstri. Efnisstýring sem starfsfólkið þitt ræður við án okkar.

VefsíðurEfnisstýring

Vefkerfi og sérlausnir

Innri kerfi, gáttir og sérsmíði þegar tilbúin lausn dugar ekki. Við hönnum gagnalíkanið, byggjum bakendann og tengjum við það sem fyrir er.

SérlausnirBakendiAPI

Netverslanir

Vöruskrá, greiðslur, afhending og allt þar á milli. Kaupferli sem er stutt og skýrt, og rekstur sem sést í tölum.

NetverslunGreiðslulausnir

Hraði og tækni

Léttar síður, rétt uppsett myndefni og skynsamleg hýsing. Við mælum svartíma og Core Web Vitals áður en vefur fer í loftið, ekki eftir á.

HraðiCore Web Vitals
Ferlið

Svona vinnum við

  1. 1

    Greining

    Við förum yfir markmið, efni og kerfin sem þarf að tengja. Út úr því kemur skýr verklýsing og áætlun.

  2. 2

    Smíði

    Hönnun og forritun í stuttum lotum. Þú sérð vefinn verða til og getur brugðist við á leiðinni.

  3. 3

    Afhending og eftirfylgni

    Prófanir, mælingar og flutningur í loftið. Eftir það: hýsing, uppfærslur og aðstoð ef þú vilt.

Ertu með verkefni í huga? Segðu okkur frá því.

Hafa samband