Heim Þjónusta Verkefni Vefúttekt Um okkur
← Öll þjónusta

Hýsingog rekstur

Við gætum, verndum og viðhöldum vefjum dag eftir dag. Hýsing, öryggisuppfærslur, afritun og vöktun, allt á einum stað og í öruggum höndum.

Þjónustan

Þetta felst í rekstri

Hýsing

Hraðvirk hýsing sniðin að vefnum, með CDN og SSL. Við veljum umhverfi eftir því hvað vefurinn þarf, ekki eftir því hvað er ódýrast.

HýsingCDNSSL

Uppfærslur og öryggi

Kerfis- og viðbótauppfærslur, öryggisplástrar og prófanir áður en þær fara í loftið. Gamlar útgáfur eru algengasta leiðin inn.

UppfærslurÖryggi

Afritun

Dagleg afrit geymd utan hýsingar. Ef eitthvað fer úrskeiðis er vefurinn kominn aftur upp á stuttum tíma, ekki eftir helgi.

AfritunEndurheimt

Vöktun og viðbragð

Sjálfvirk vöktun á uppitíma, hraða og skírteinum. Við sjáum vandamálið oftast áður en þú tekur eftir því.

VöktunUppitími
Ferlið

Svona vinnum við

  1. 1

    Yfirfærsla

    Við flytjum vefinn til okkar, prófum í lokuðu umhverfi og skiptum yfir án niðritíma.

  2. 2

    Rekstur

    Uppfærslur, afrit og vöktun keyra á sínum takti. Þú færð yfirlit, ekki tilkynningu um hvert smáatriði.

  3. 3

    Þróun áfram

    Rekstrarsamningur getur innihaldið tíma í breytingar og viðbætur svo vefurinn staðni ekki.

Viltu að einhver vaki yfir vefnum þínum? Heyrðu í okkur.

Hafa samband