Heim Þjónusta Verkefni Vefúttekt Um okkur
← Öll þjónusta

Hönnunog ásýnd

Vefhönnun, vörumerki og ásýnd sem endurspegla fyrirtækið þitt. Frá fyrsta wireframe að fullkláruðu útliti, með notandann í forgrunni.

Þjónustan

Þetta felst í hönnun

UX og viðmót

Flæði, uppbygging og viðmót. Við teiknum vefinn fyrst sem wireframe svo ákvarðanir um innihald séu teknar áður en útlitið kemur.

UXWireframe

Útlitshönnun

Letur, litir, myndmál og taktur. Hönnun sem heldur sér á öllum skjástærðum og er teiknuð til að vera forrituð, ekki bara skoðuð.

UIResponsive

Vörumerki og ásýnd

Merki, litapalletta, leturval og reglur um notkun. Ásýnd sem virkar jafnt á vef, í prenti og á samfélagsmiðlum.

VörumerkiÁsýnd

Hönnunarkerfi

Endurnýtanlegir hlutar, tókar og skjölun. Vefurinn helst samkvæmur þegar hann stækkar og fleiri koma að honum.

Design systemSkjölun
Ferlið

Svona vinnum við

  1. 1

    Rannsókn

    Viðtöl, samkeppni og efnið sem er til. Við skiljum hvað vefurinn á að gera áður en við teiknum.

  2. 2

    Wireframe og flæði

    Grá uppbygging fyrst: hvað er á síðunni, í hvaða röð og hvað gerist þegar smellt er.

  3. 3

    Útlit og frumgerð

    Fullbúið útlit sem hægt er að smella í gegnum og prófa á fólki áður en það er forritað.

Vantar vefinn þinn skýrari ásýnd? Tökum samtalið.

Hafa samband